Það eru búin að vera veikindi á þessu heimili, litli gaurinn byrjaði í síðustu viku, svo veiktist pabbinn, svo að lokum veiktist ég um helgina og er búin að vera bara heima veik sl 2 daga en vonandi fer þetta að verða búið... svo vil ég taka það fram (ef einhver les bloggið á kallinum ) að færslan ´´Bráðfyndin nótt´´ hjá honum er einmitt út frá veikindabulli hjá mér (svo ég bulla ekki svona mikið öllu jöfnu
Æji annars hef ég ekkert mikið að segja í augnalikinu, svo ég kveð að sinni
Athugasemdir
ÓMG hvað ég er heppin að sleppa við svona. Annars er mín litla skvís búin að vera veik nánast síðan 14. sept. þessar helv.... sprautur og umgangskvef Jæja kvitt kvitt.
p.s. jamm ég er bara heimavinnandi 3 barna bóndi.
jeg (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 22:14
jeg, það er ekkert ´´bara´´ að vera heimavinnandi, og hvað þá bóndi
Garpur76, 6.11.2007 kl. 22:17
Nei nei, þú ert ekkert svona að öllu jöfni nei nei nei
Unnar (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 01:17
Nei ég veit það er töluvert að vera heimavinnandi með 3 börn, mann, helling af rollum, slatta af hestum, nokkrar hænur, örfáar endur, slatta af fiskum og 1 hund. Hef samt gaman að segja þetta því það er jú hellingur af fólki sem heldur virkilega að það sé ekkert mál og aldrei neitt að gera hjá heimavinnandi. Gaman að segja frá því......
kvitt, kvitt
jeg (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.